Franz Ferdinand ætla að spila aukatónleika! Á ORGAN! Eins og að sjá Duran Duran í Krúsinni, Ísafirði.
Reykjavík! hitar upp.
---
Hér er textinn úr fréttatilkynningunni:
Einstakir aukatónleikar - Franz Ferdinand með sérstöku sniði
Hljómsveitin hefur sjálf óskað eftir því að taka sérstaka aukatónleika á enn minni stað í Reykjavík fyrir föruneyti sitt (starfsmenn Domino Records, nokkra blaðamenn o.s.frv.) - sem og unnendur sveitarinnar. Tónleikarnir munu fara fram á tónleikastaðnum Organ (Hafnarstræti 1-2, bakhús), laugardagskvöldið 15. september. Takmarkað magn miða verður sett í sölu fyrir þessa einstöku aukatónleika. Miðasala hefst viku fyrir tónleikana, Laugardaginn 8, september í verslunum Skífunnar og á Midi.is.
Flokkur: Tónlist | 6.9.2007 | 20:28 (breytt 7.9.2007 kl. 10:50) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.